Diamonds are a girls best friend ....

... eða ekki, og ég var ekki að trúlofa mig um símalínu yfir í menntaskólapartý í Fellabæ. Var hins vegar að enda við að horfa á Blood diamonds, og er soldið sjokkeruð yfir öllum hamagangnum vegna þessara blessuðu demanta. Langar að því tilefni að benda á gamla en mjög athyglisverða helgarumfjöllun á Vefritinu, sem fjallar einmitt um demantaiðnaðinn (værsogod!

Ég skrifaði sjálf líka grein á þetta sama vefrit, í gær. Bendi á hana hér, ef einhver skyldi vera áhugasamur.

Annars er ég orðin afar spennt vegna 12. maí. Ég er soldið spennt útaf Gus Gus tónleikunum á morgun og er líka kominn með soldinn fiðring vegna fyrirhugaðs náms á skurðlækningadeildum LSH fyrir áramót næsta vetur. Gó kírúgía!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband