Tveir flugmiðar til Kenýa

Gengið hefur verið frá kaupum á flugmiða til Nairobi í Kenýa 9. júní og svo heim aftur 8. júlí. Ég á síður von á að það verði leiðinlegt að vinna á heilsugæslustöð, fara í safarí og síðan á strönd ....

En þó að þetta verði gaman er nú algjör óþarfi að kaupa tvo miða fyrir mig eina. Ég gerði það samt óvart, út af einhverju klikki á heimasíðu British Airways (skil ekki hvað ég er að linka á þessa helvítis síðu reyndar). Nett áfall, nú verð ég bara að vona að þeir standi við orð sín og endurgreiði upphæðina, annars drepa þeir VISA-kortið mitt endanlega.

Ekki nema einhver vilji koma með?

 

.... þeir sem eru ekki búnir að skoða Vefritið ættu endilega að tékka á því!


Meðmæli

Meðmælin tókust vel. Steindór og Garðar tóku sig vel út með gjallarhornin, allir héldu fínustu ræður og þetta var bara stuð. Nú er bara að vona að boðskapurinn nái í gegn.

Í dag mæli ég hins vegar mest með þessu.


Nostalgía

Já, brjáluð nostalgía þegar ég klæddi mig upp í gamla Poot kjólinn minn og stóra hettupeysu, Dr. Martens skó og setti hárið upp eins og heysátu í hnakkann með fáránlega mörgum spennum. Aðeins of mikið máluð líka .... alveg eins og árið 1995.

Rosa skemmtilegt próflokapartý! Gangsta's Paradise, No Limit og Common People ... og umræðurnar snerust um Tark-buxur, Wu Tang Clan og hverjum maður væri skotinn í, næstum því.

Já, búin í prófum. Jei!


Ég meðmæli!

Allir að skrifa undir!

Gleymdist að láta Þorgerði Katrínu vita?

Vísindin efla alla dáð,

orkuna styrkja, viljann hvessa,

vonina glæða, hugann hressa,

farsældum vefja lýð og láð;

 

tífaldar þakkir því ber færa

þeim, sem að guðdóms eldinn skæra

vakið og glætt og verndað fá

viskunnar helga fjalli á.*

 

Allir að mæta á meðmælin 12. október ...  

 

*(þetta æfir Háskólakórinn fyrir næstu útskrift, 21. október, og er eftir Pjakk ...)


Haustið er yndislegt

Veðurguðirnir virðast ætla að bæta okkur upp sumarið með frábæru hausti. Alveg eins og þau gerast best ... og ég hélt að væri bara alls ekki til á Íslandi.

Alveg samt fáránlega hrædd um að þessum yndislegheitum ljúki snögglega og veturinn mæti í öllu sínu veldi stundvíslega klukkan sex á þriðjudaginn.


Ólík hlutskipti

Um helgina verða systur mínar í Barcelona og París. Ég verð heima að lesa um HIV, Herpes og aðrar vinkonur þeirra. 

Smá bitur, óska þeim samt góðrar ferðar.


Tvö búin, eitt eftir

Sýklafræðin frá, veirufræðin bara ein eftir. Sem er ágætt.

Eftirvæntingin fyrir þriðjudeginum fer vaxandi með hverri mínútunni. Þá verð ég búin í prófum og þarf ekki að fara aftur í próf fyrren í mars!! segi og skrifa.

Hef farið í jólapróf eiginlega bara alveg síðan ég man eftir mér, þannig að það verður ansi ljúft að geta eytt desember í að spóka sig niðrí bæ, kaupa kannski jólagjafirnar ekki á Þorláksmessu og sofa ekki öll jólin í spennufalli eftir madness desembermánaðar.


Hinn týpíski stúdent

Allir salsabitarnir voru búnir í bakaríinu þegar ég ætlaði að fá mér þannig í dag. Pepsi Max-ið var líka uppselt á Select í kvöld.

Ætli næst verði ekki til latte á Kaffitár?


Lélegar mæður

Við systurnar vorum skildar eftir einar um helgina með mikilvægt verkefni, að sjá um köttinn Mugg. Hljómar kannski ekki erfitt en það er álíka mikil vinna og að hugsa um ungabarn. Til dæmis neitar kötturinn að drekka vatn nema beint úr krananum. og ekkert hvenær sem er. Auk þess krefst hann mikillar athygli, ástar og umhyggju.

Það var samt Steindór sem var sá eini sem tók eftir undarlegri hegðun kattarins í gærkvöldi. Síðar kom í ljós að aumingja dýrið hafði ekkert fengið að borða í þrjá daga. Frekar glataðar mömmur við systur.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband