Fimmtudagur, 2. nóvember 2006
Brjóstastækkun og Vefrit
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 1. nóvember 2006
Ókeypis kaffi latte
Ég var alveg fáránlega glöð í morgun þegar keypti mér latte á Kaffi Roma og komst að því að klippikortið mitt var orðið fullt og sá næsti yrði ókeypis. Svo mundi ég eftir því að Kaffitársklippikortið mitt er orðið fullt líka - frábært, ókeypis latte þar líka!
Svo fór ég að reikna. Til þess að fá 2 "ókeypis" latte hafði ég nefnilega keypt mér 22 og þeir voru sko alls ekkert ókeypis, eiginlega bara rándýrir. Kannski spurning um að kötta þetta aðeins niður og reyna að eyða peningunum sínum í eitthvað annað en bara kaffi!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 28. október 2006
Alltaf sama sagan
Sjálfstæðismenn hafa komið einu sinni enn útúr skápnum:
1. Geir H. Haarde: 1.823 atkvæði í 1. sæti
2. Björn Bjarnason: 907 atkvæði í 1.-2. sæti
3. Guðlaugur Þór Þórðarson: 1.078 atkvæði í 1.-3. sæti
4. Guðfinna S. Bjarnadóttir: 812 atkvæði í 1.-4. sæti
5. Ásta Möller: 931 atkvæði í 1.-5. sæti
6. Illugi Gunnarsson: 1.104 atkvæði í 1.-6. sæti
7. Pétur Blöndal: 1.214 atkvæði í 1.-7. sæti
8. Sigurður Kári Kristjánsson: 1.344 atkvæði í 1.-8. sæti
9. Birgir Ármannsson: 1.459 atkvæði í 1.-9. sæti
10. Sigríður Ásthildur Andersen: 1.245 atkvæði í 1.-10. sæti
11. Dögg Pálsdóttir 1.215 í 1.-11. sæti
12. Grazyna Okuniewska 717 atkvæði í 1.-12. sæti.
Ef þetta verður endanlega niðurstaðan í prófkjörinu og fjöldi þingmanna Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík helst óbreyttur í næstu kosningum taka sjö karlar og tvær konur af þessum lista sæti á Alþingi í vor!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 24. október 2006
Gulir og góðir
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 23. október 2006
Vefrit og styrkjasöfnun
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 22. október 2006
Ættarmót
Ég held að þetta séu furðulegustu samkomur sem fyrirfinnast um víða veröld. Nýuppgötvaður frændi minn sem býr í Noregi var held ég sammála.
Kórónaði síðan helgina með tólfhundruð króna bíóferð, ég fór semsagt að sjá Mýrina. Fín mynd, veit samt ekki alveg með tólfhundruðkallinn.
Bloggar | Breytt 25.10.2006 kl. 12:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 19. október 2006
Airwaves
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 18. október 2006
Gjörgæslan
Þá er það ákveðið - heilum tíu vikum í vor verður eytt á gjörgæslunni. Þar ætla ég að rannsaka sýklasótt, spennandi að vita hvað kemur út úr því ....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 17. október 2006
Ljúfa lífið
þessa dagana eftir madness þeirrar síðustu. Gaman, gaman. Mér finnst ofsafínt að vakna seint, fara á kaffihús, kannski tvisvar og drekka latte, hitta loksins kærastann minn, horfa á vídjó og borða pizzu upp í rúmi.
Ekki það að ég gæti ekki farið í skólann, valið mér rannsóknarverkefni, lesið lyfjafræði og meinafræði. En það eru allt saman seinni tíma vandamál.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 15. október 2006
Októberfest
Ég tók Októberfest með trompi. Tjaldið var óneitanlega hakkað en batnaði mjög mikið eftir því sem bjórunum fjölgaði. Skipulagði eins og eina ferð til Buenos Aires með viðkomu í Ríó, ruglaði heilmikið í plötusnúðnum, verslaði skot af dóttur forsætisráðherra á Vökubarnum, kyssti strák á Röskvubarnum, tók þátt í gríðarlegri próflokagleði þriðja árs læknanema sem voru hressir.
Já, það var gaman. Afgangurinn af helginni hefur aftur á móti ekki verið það skemmtilegur og einkennst af þynnku og vinnu. Í næstu viku ætla ég að vera dugleg ....
Minni enn og aftur á Vefritið, mál málanna þessa dagana ....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)