Ef ég væri skógarbjörn ...

.... væri óneitanlega alveg fínt að geta bara sofið allan veturinn!

Held að það myndi henta mér fínt að liggja í hýði yfir vetrarmánuðina ....


Mánudagur (til mæðu?)

Mér finnst alltaf vera annað hvort mánudagur eða helgi. Aðrir dagar vikunnar renna eiginlega bara saman í þokumóðu einhvers staðar þar á milli.

Helgarinnar verður einkum minnst fyrir tvennt:

- afar vel heppnaðir tónleikar Háskólakórsins í Neskirkju. Gloria eftir Vivaldi stendur uppúr, ótrúlegt að syngja tónlist sem var samin fyrir þrjú hundruð árum en er samt svona ótrúlega lifandi!!

- í kjölfarið afskaplega furðulegt en skemmtilegt kvöld, sem kom víða við en byrjaði á voða góðum mat á Viktor og endaði í stífri gindrykkju í stigagangi einum mjög nærri heimili mínu.

Fleira er ekki í fréttum. 


Lítil stelpa að þykjast vera læknir

Já, þannig leið mér í morgun þegar ég mætti upp á sjöundu hæð Landspítala háskólasjúkrahúss í Fossvogi - þar sem ég átti að taka sjúkrasögu og gera líkamsskoðun í fyrsta skipti.

Mér leið sko aldeilis ekki eins og ég væri ekki svo ofurmörgum árum frá því að verða fullgildur læknir - eiginlega heldur bara frekar kjánalega með hlustunarpípuna um hálsinn. Sem betur fer mætti mér indælasti maður í heimi - enda ekki fyrir hvern sem er að þola eins og hálfs tíma yfirheyrslu um allt mögulegt og ómögulegt tengt heilsufari sínu! Síðan tók ábyggilega ekki betra við þegar ég byrjaði að pota í hann, það líktist hugsanlega óljóst því þegar læknar skoða sjúklinga sína, en aldrei meir en það! 

Jújú, gekk svosem ágætlega! Veit samt ekki alveg hvort ég á að trúa því að æfingin skapi meistarann og ég verði einhvern tímann alvöru læknir ....


Bond, James Blond!

Ég fór semsagt á Bond í gærkvöldi og var bara nokkuð hrifin. Daniel Craig var svona hundrað sinnum flottari en ég bjóst við (hafði litla trú á ljóshærðum Bond (Blond?) - svona er maður fastur í staðalímyndum!) 

Enda dálítið erfitt að skilja staðalímyndirnar eftir heima þegar maður fer á Bond! Liggur eiginlega í hlutarins eðli.

Samt fannst mér takast nokkuð vel upp að þessu sinni. Fyrri gellan var svona týpísk Bondgella. Hún var reyndar eiginlega alltof týpísk, næstum því þannig að maður dró þá ályktun að verið væri að gera grín að Bondgellum fyrri tíma .... 

Í kjölfarið kom auðvitað í ljós að mun meira var í síðari Bondgelluna spunnið. Ég ætla nú ekki að eyðileggja myndina fyrir fólki en mæli hins vegar með því að fólk skoði þennan vinkil ef það leggur leið sína á Casino Royale.

Svo verður bara að koma í ljós hvort hlutur kvenna verði annar og betri í næstu Bondmyndum!


Pólí-tíkin í nágrannalöndunum

Vefritið hefur gert pólítík í nágrannalöndum okkar góð skil síðustu daga. Fyrst kom Eva með prýðisúttekt á stöðu mála í Danmörku og í dag fræðir Maggi Már okkur um ástandið í Bretlandi í ljósi sögu Verkamannaflokksins.

Ótrúlega áhugavert, mæli meðessu!


Menningarlega heft (en ekki Sufjan)

Kærastinn minn stendur í þeirri meiningu að ég sé menningarlega heft, og gæti haft nokkuð til síns máls þar sem ég hef misst af mjög mörgum "ómissandi" kvikmyndum gegnum tíðina og ekki einu sinni heyrt minnst á marga "must-see" sjónvarpsþætti ....

Þetta stendur hins vegar allt aldeilis til bóta, og í nótt sá ég í fyrsta sinn stórmyndina Pulp Fiction í heild sinni! Þetta var eiginlega bara frábær mynd, og ég hlakka bara til að horfa á fleiri gamlar og góðar myndir sem ég hef bara aldrei séð! Þar á ég náttúrlega mjög margar eftir .... hlakka samt sérstaklega til að sjá Guðföður-seríuna og einhverja gamla Bonda (sem er víst skylda að sjá).

 

Sufjan var hins vegar alls ekkert menningarlega heftur, heldur bara geeeðveikur. Fljúgandi jólasveinar, huggulegar og fyndnar sögur og þessi frábæru lög, allt í ótrúlega miklu návígi í Fríkirkjunni. Hápunktur tónleikanna var að mínu mati John Wayne Gacy jr, uppáhalds Sufjan Stevens lagið mitt, sem var alveg frábærlega vel flutt að auki. Gaman, gaman.


Börn

Konan hans pabba sagði mér svolítið dramatíska sögu í gærkvöldi, sem innihélt bæði lögreglu og stuld á peningum. Sjö ára bróðir minn átti ekki að fá að vita um þessa ansi samt krassandi atburði, svo hún ákvað að tala ensku.

Eftir á kom hins vegar í ljós að barnið skildi allt sem fram fór okkar á milli og spurði í smáatriðum út í atriði sögunnar. Ótrúlegt, ekki vissi ég að litli bróðir minn hefði sjálfur lært að skilja ensku!

Þökk sé Simpsons fjölskyldunni.


Spurningar helgarinnar

... til hvers að halda prófkjör ef maður gæti alveg eins bara boðið aftur fram sama listann og fyrir fjórum árum?

... af hverju eru konur yfirhöfuð í Sjálfstæðisflokknum?

... hvaða fæðingarhálfviti fer niður í bæ án þess að borða kvöldmat og drekkur fullt af bjór?

... af hverju má maður sem skattgreiðandi ekki hafna því að fá Árna Johnsen aftur á þing?

... hvaða sjúkdómar geta herjað á hjartað?

hef hugsað mér að leita svara við síðustu spurningunni, við öðrum segi ég bara - beats me. 


Varað er við stormi

Allt veður getur verið gott veður. Svo lengi sem það er ekki rok! Þá breytist hins vegar allt veður í vont veður .... 

Froststillur geta verið æði, þá klæðir maður sig bara vel og dáist að norðurljósum og stjörnum. Rok í ískulda ætti hins vegar að banna enda mesti viðbjóður! Þá verður maður nú bara að halda sig inni.

Rigningin er líka góð. Rok & rigning, nei takk! Snjókoma í stilltu veðri, mmmm! Snjóbylur hins vegar ekki svo góður. Rok eyðileggur líka bestu sólardaga, það er bara einfaldlega aldrei neitt gott veður þegar er rok! 

Samt alltaf eitthvað smá ævintýralegt við svona brjálað veður. Svo lengi sem maður þarf ekki að fara út .... 


Af konum og körlum

Þó að mér finnist margt flott fólk og margir góðir listar hafa litið dagsins ljós í prófkjörum síðustu daga get ég ekki annað en svekkt mig aðeins á því að mér finnst konum bara alls ekki hafa gengið nógu vel.

Hvergi hefur kona sigrað í opnu prófkjöri, og munu konur engan lista leiða enn sem komið er nema Siv í suðvestur fyrir framsókn, og ekki er ég annars hrifin af þeim flokki! Kynjahlutföllin eru hvergi konum í vil, svo ég muni til, og yfirleitt eru karlar í meirihluta og/eða skipa 2-3 efstu sæti framboðslistanna þar sem þegar er búið að kjósa.

Mér fannst til dæmis voða mikið svekk í gærkvöldi að konan sem var lengi af í 2. sæti hjá Samfylkingunni í suður skyldi detta niður í fjórða, þrjú efstu sætin eru nú skipuð köllum og það var bara kynjakvóta að þakka að það er ekki bara ein kona í topp fimm á þessum annars ágæta lista!

Ég held bara að meðan staðan er svona eru kynjakvótar það eina sem blífur, það er að segja ef við ætlum ekki bara að sætta okkur við að Alþingi sé að miklum meirihluta skipað körlum (Aggi, kommentakerfið er opið!) Auðvitað eru líka fleiri prófkjör eftir, og við verðum bara að hafa það í huga þegar við kjósum í þeim að veita konum framgang til jafns við karla!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband