Ekki-annáll

Gleeeðilegt ár!

Ég er búin að gera heiðarlega tilraun til  þess að setja saman áramótaannál en það hefur ekki gengið nógu vel. Ég held að það hafi bara of mikið gerst á þessu ári, það færi betur á því að skrifa bara bók!

Annars er kemur risið á Laufásvegi sterkt inn sem besti atburður ársins (fyrir utan auðvitað kynni mín við Steindór!) Það er líf og fjör í risinu þegar við erum þar öll, þ.e. við Steindór, Halla og Andri. Sérstaklega á síðkvöldum eða á nóttunni þegar allir aðilar hafa drukkið mikið.

Ferð Ferðafélagsins þreytta sveitta og svanga til Belgíu og Bretlandseyja stendur uppúr sem skemmtilegasta vika ársins.

Þar sem árið 2006 verður lengi í minnum haft sem tónleikaár allra tíma finnst mér alls ekki úr vegi að gera smá lista yfir tónleika ársins:

1. Radiohead á Pukkelpop. Ég fæ ennþá gæsahúð þegar ég hugsa um það.

2.  Belle&Sebastian og Emilíana Torrini á Borgarfirði eystri. Það var svo gaman ....

3.  Rolling Stones í Twickenham. Besta skyndiákvörðun ársins.

4. Sufjan Stevens í Fríkirkjunni. Merry Christmas og fljúgandi jólasveinar.

5. Hot Chip á Pukkelpop. Úrhellisrigningin fyrir utan tjaldið gerði þetta svo ógleymanlega upplifun!


Komdu með mér í gamlárspartý ....

Veit ekki alveg með áramótin. Ekki alveg svona mitt kvöld. Of margt fólk, of fáir leigubílar, of miklar væntingar og of mikið um að vera. Enda hef ég einhvern tímann endað mitt gamlárskvöld með því að pússla inn í nýja árið og sleppt því alveg að fara út.

Á hinn bóginn hef ég líka farið í fáránlega vel heppnuð áramótapartý! Partýið hjá Önnupálu og Bjarna um síðustu áramót var allavega með betri kvöldum ársins, þó að stundum hafi stuðið alveg farið fyrir ofan garð og neðan á þessu ágæta fyrsta/síðasta kvöldi ársins.

Á morgun ætla ég þessvegna ætla ég að veðja á djammið. Og sit heima núna (veit af reynslu að það er hægt að fara flatt á 30. og ég ætla sko ekki að eyðileggja óóógeðslega góða humarinn sem ég er búin að hlakka til allt árið 2006 að borða!) 

 Annars vil ég bara segja takk fyrir, 2006. Fínasta ár!


Jólaóregla og vitleysa

Long tæm nó sí! enda jólin vaðið yfir rútínuna mína og lagt hana í rúst. Jólin voru auðvitað dásamleg, þó að vinna núna milli jóla og nýárs hafi verið vel þegin, bæði af fjárhagslegum og rútínulegum ástæðum.

Þessa dagana er ég líka ljúflega vakin af lífsklukkunni minni - vekjaraklukku sem er líka lampi og byrjar hægt og rólega að kveikja ljósið hálftíma áður en hún vekur mann sjálfan með afar náttúrulegum og indælum hljóðum. Ef þess er óskað svæfir hún mann líka. Já, gott að geta keypt sér líkamsklukku ef manns eigin er alveg hökkuð. Og eiga góða mömmu.

En þegar maður vinnur við að skrifa hefur maður ekki þörf til skrifta þess utan. Eins gott fyrir þetta ágæta blogg að vinna stendur einungis yfir í þrjá daga þetta skiptið - síðasti dagurinn á morgun!

Takk fyrir og góða nótt!


... og Vefritið enn og aftur

Ég skrifaði grein á Vefritið í dag. Það má lesa hana hér, ef einhvern langar! 

Kryddaður desember

Í öðruvísi desember mæli ég með Krydduðum desember. Fáránlega góður kaffidrykkur sem fæst á Kaffitári. Reyndar ógó dýr, en alveg þess virði! 

Ég mæli hins vegar ekki með veðrinu því það kælir kaffið. 


Nýi vinur minn

Ég vek athygli á nýjasta vini mínum. Það er mitt kæra Vefrit, sem nú er einnig að finna á blog.is!! 

Gaman, gaman, allir þangað! 


Of ungur?

Kærastinn minn er aðeins yngri en ég. Það skiptir reyndar ekki nokkru máli, okkur kemur ágætlega saman þrátt fyrir aldursmuninn!

Hins vegar gæti þetta auðvitað farið að valda nokkrum vandkvæðum ef atburðir helgarinnar fara að endurtaka sig. Þá var honum Steindóri mínum nefnilega ekki hleypt inn á Ölstofuna sökum ungs aldurs!

Aðrir samferðamenn okkar ákváðu í mótmælaskyni að yfirgefa Ölstofuna og kíkja í staðinn á Vegamót til þess að njóta samvista við okkur drenginn. Það fór samt ekki betur en svo að honum var ekki heldur hleypt inn á Vegamót, þá gáfumst við upp og fórum heim.

Ég get samt huggað mig við eitt - það er betra að eiga kærasta sem er ekki hleypt inn á Ölstofuna en kærasta sem er þar alltaf!


Öðruvísi desember

Hvernig eyðir kona desember þegar kona þarf ekki að fara í próf?

Krummi krunkar úti

Ég vaknaði við alveg rosalegt hrafnakrunk í morgun! og þegar ég fór að kanna málið sat svona líka risastór kolbikasvartur krummi á þakskegginu, rétt við risgluggann minn. Við horfðumst í smástund í augu, við krumminn, þangað til honum þótti nóg um og lét sig hverfa niður í bæ.

Nú er bara spurningin - hvað ætli hann hafi ætlað að segja mér?


Herra Ísland

Þegar búið er að yfirfæra fegurðarsamkeppnir yfir á hitt kynið sést svo ótrúlega vel hvað þær eru kjánalegar.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband