Að gleyma prófum

... er ekki jafn erfitt og sumir gætu haldið. Ég fór í vinnuna um helgina og um leið gleymdist eiginlega bara alveg að ég væri í miðjum prófalestri. Og það var bara svo fínt .... 

Dagurinn í dag fór síðan í að halda upp á afmælið hans Steindórs, sem er loksins hættur að vera vandræðalega ungur. Afskaplega huggulegt, sushi að vali afmælisbarnsins, japanskur bjór og kvikmyndin Daft Punk's Electroma, einnig að vali afmælisbarnsins. Allt mjög fínt. 

Hvarflaði varla að mér eitt augnablik að ég er á leiðinni í próf í fyrramálið. kannski sem betur fer, því þá  var ég blessunarlega alveg laus við tunglsýki. Vona bara að mér fyrirgefist í prófinu á morgun, enda á það nú hvorki að vera flókið né erfitt. Efast samt um að það sama verði sagt um "the real thing" sem skellur á á fimmtudaginn, fyrsta lokapróf þriðja ársins .... 

vildi að mér væri ekki alveg nákvæmlega sama. 


Herinn loksins alfarinn

Ég bara verð að lýsa ánægju minni með brotthvarf síðustu hermannanna. Jess!

Myrkrið

Myrkvinn í gærkvöldi var nú ekki alveg jafn tilkomumikill og ég hafði vonað. Við búin að slökkva öll ljósin klukkan tíu, og fjölmenntum út á fínu svalirnar til að njóta myrkursins út í ystu æsar. En nei, ekkert svo mikið myrkur. Þessir eyðilögðu fína myrkrið fyrir okkur hinum og fara því á svarta listann:

Kári Stefánsson og ÍE, Þjóðarbókhlaðan fær feitan mínus, Lögberg og Oddi (Öskjuljósin voru sem betur fer samviskusamlega slökkt klukkan tíu), Stúdentaráð (við sáum ljósin þar alla leiðina hingað heim á Laufásveginn). Allur Hafnarfjörður eins og hann leggur sig, útlendingarnir á Hótel Sögu að ógleymdum öllum þeim sem gátu ekki sleppt því að keyra bílana sína milli tíu og hálfellefu.

Skýin voru líka ljót að byrgja fyrir okkur stjörnurnar ...

Síðan voru ljósin kveikt aftur. Við vorum einmitt að velta fyrir okkur hvort það hefði verið hætt við að tendra aftur götuljósin í Reykjavík þegar við sáum litla glætu á öllum ljósastarunum. Mínútu seinna voru þau aftur farin að lýsa af fullum styrk, eiginlega alveg án þess að maður tæki eftir neinum mun!

Mér fannst samt flott og táknrænt að þessi myrkvi átti sér stað sama dag og byrjað var að hleypa vatni í Hálslón. Það kom einmitt áhugaverð hugmynd upp á svölunum heima hjá mér, að gera þetta bara á hverju kvöldi og hætta við Kárahnjúkavirkjun!

Næstum að ég vildi heldur lifa í myrkri en að koma þessari helvítis virkjun í gagnið. 


NEI!!!!

Ég neita að trúa að þetta sé að gerast.
mbl.is Hálslón myndast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hlakka svo til ....

Hugurinn á mér er úti um allt, aðallega náttúrlega í Kenýa, og mér er lífsins ómögulegt að læra. Í dag hittum við stelpurnar sem fóru út í sumar og ég væri að taka of vægt til orða ef ég segðist bara hlakka til.

Ekki það sem ég þurfti í miðjan próflesturinn, sem hefur mátt ganga betur til þessa. Líka stanslaust áreiti og bögg í skólanum, barningur að vakna í fyrirlestrana á morgnana og enn brjálæðislegt verklegt prógramm eftir hádegi nærri hvern einasta dag, frekar óþolandi.

En mér er svosem sama. Ég læri bara um allar þessar pöddur, veirur, bakteríur og kvikindi læf næsta sumar!


Nýtt kort

Mér finnst afar óeðlilegt að borga þúsund krónur fyrir að endurnýja debetkortið mitt, sem afgreiðslumaður gleymdi að skila mér í Bónus á föstudaginn. 

Er þetta allstaðar svona, eða er ég bara í kolvitlausum banka?


Fimmtán mínútur þar til safninu verður lokað

Þegar ég sit og bíð eftir því að Þjóðarbókhlaðan loki byrja ég snemma að undirbúa mig undir sjokkið. Samt bregður mér alltaf, í hvert og eitt einasta skipti, þegar undirtekur í öllu húsinu: "safngestir athugið, nú eru fimmtán mínútur þar til húsinu verður lokað."  Alltaf jafn fáránlega, óeðlilega hátt. 

Frekar óþægilegt. Samt óneitanlega þægilegra en að vakna um miðja nótt aleinn í Þjóðarbókhlöðunni.


Mér finnst ....

.... gaurinn sem situr við hliðina á mér á Þjóðarbókhlöðunni og hlustar á klassíska tónlist góður á því

.... að fólk eigi almennt að vera duglegra að blogga

.... Bob Dylan góður

.... MySpace furðulegt, samt hangi ég þar meira en minna

.... svindl þegar maður á að vera að læra undir próf og það er alltaf gott veður. Hvar var góða veðrið í sumar?!

.... voða fínt að vinna með sýkt saursýni, sem betur fer ekki eigið samt

....  að ég eigi að vera duglegri að læra, og hanga minna á netinu


Próflestur

Djammleysið hefur tekið yfir líf mitt. Föstudagskvöldið var reyndar tekið í hitting með fjórum æðislegum stelpum sem ég hef ekki séð of lengi. Þar sátum við alveg til hálffimm um nóttina yfir hóflegri hvítvíns- og bjórdrykkju, kexi og ostum. 

Enginn stakk upp á því að fara niðrí bæ. Ætli maður sé bara að verða fullorðinn?


Af hverju ...

... finn ég alltaf eitthvað að skoða á netinu um leið og ég opna skólabækurnar? Ég ætti líklega bara að henda tölvunni minni út um gluggann.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband